Þá er gleðitörninni lokið í bili.... þessa helgina
allavega 
Fór á tvær árshátíðar;
Árshátíð hina fyrri
&
Árshátíð hina síðari
Árshátíð hin fyrri
Árshátíð hin
fyrri var semsagt Árshátíð KHÍ og var hún haldin í
gær, fimmtudag.
Dagurinn
byrjaði með því að við Guðrún og Hrefna áttum að hitta hann Láka
vegna lokaverefnisins en eftir að hafa beðið í dágóða stund eftir
honum í Bolholtinu komust við að því að hann lá veikur heima svo
ekkert var úr þessum langþráða fundi okkar. Þá fórum við upp í
skóla og hittum Sigga Bjöss út af þróunarverkefninu. Hann tók
heimspekistund með okkur í u.þ.b klukkutíma, eða til ca 13 og
eftir það fórum við Guðrún örstutt upp í Kringlu og svo heim
og hófumst handa við að sjæna okkur til. Svo var Íris svo góð að
koma að skutla okkur heim til Gróu í Vesturbæinn um 16:30. Við
vorum með þeim fyrstu í partýið en fljótlega fylltist pleisið og
gífurleg gleði og stemning í húsinu. Mikið dansað, sungið, spjallað
og allt það. Fórum svo á Broadway um kl 19:30 og fékk okkar
bekkur besta borðið í húsinu - beint fyrir framan tröppurnar upp á
svið. Enda voru aðalpíurnar í árshátíðarnefndinni á okkar snærum,
þær Þóra og Maggý
Við komuna fengum við fordrykk og svo
var borin fram geeeðveikt góð sveppasúpa í forrétt og
lamba-eitthvað í aðalrétt. Ég reyndar fékk mér grænmetisrétt þar
sem ég hef góða reynslu af honum síðustu tvö árin. Og jú- hann var
líka mjög góður núna.
Skemmtiatriðin
voru mjög góð. Mátulega löng og mjög skemmtileg og héldu manni við
efnið allan tímann. Annað en síðustu árshátíðir
Plat Silvía Nótt
tók lagið og sló alveg í gegn. Náði frumeintakinu alveg einstaklega
vel. Svo var snilldar myndband frá strákunum á grunnskólabraut á
þriðja ári og meira segja Skólastjórafélagið Skarphéðinn var með
stutt og hnitmiðað atriði - en það var akkúrat atriðið frá þeim sem
flestir óttuðust vegna þess hve hræðilega leiðinleg og óendanlega
löng þau hafa verið hingað til. Drápu t.d alla stemningu í húsinu í
fyrra
Svo var tónmenntasviðið með flott atriði og
veislustjórarnir voru frábærir en það voru þeir
leiklistarnemar Halli Melló og....man ekki hvað hann heitir en
hann var sætur. Og já maður - svo var happadrætti auðvitað og
haldiði ekki bara að Heiðan hafi unnið tvo boðsmiða í Bláa lónið
Ég var mjög sátt, bæði að því að ég vinn ALDREI neitt (nema
páskaeggið forðum daga) og svo hef ég heldur ALDREI komið í Bláa
lónið. Nú er bara að finna lífsförunautinn til að taka með í lónið.
En tíminn er knappur þar sem þetta rennur út 30. júní
Annars
verðið þið hin bara að slást um lónsmiðann 
Eftir
skemmtiatriðin var slegið upp dansleik með þeim félögum Á móti sól
og þeir klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn og svo DJ-uðust
Gullfoss og Geysir á efri hæðinni. Þeir voru líka mjög
góðir.
Um 3 leytið
vorum við stelpurnar komnar með nóg og hún Eyrún elskan kom og
sótti okkur Guðrúnu og skutlaði heim. Já, hún reif sig upp úr
fastasvefni til að skutlast með okkur. Endalaust þakklát. KNÚÚÚS
Eysa mín 
Semsagt; Frábær árshátíð í alla staði.. nema
auðvitað veiðilega séð. En árshátíðarnefndin á hrós skilið.
Þau lengi lifi - Húrra húrra húrra 
Árshátíð hin
síðari
Byrjaði daginn á því að vakna ofurhress eftir
gleðina kvöldið áður og fór beint í vinnu. Strax eftir vinnu
fór ég svo heim og skveraði mig upp aftur fyrir næstu
árshátið, Árshátíð leikskóla Reykjavíkur.
Fór í sama kjólinn og málaði mig næstum eins og var bara í
algjörum deja vu fíling þar sem ég var líka á leiðinni á
Broadway aftur. En eftir ótrúlega stuttan "takamigtil tíma"
fór ég í Mosarimann heim til Bessý leikskólastjóra þar sem
nánast allt staffið og fullt af mökum voru samankomin. Fórum
svo á Brodda um kl 20:00 og talandi um deja vu. Fengum borð á
sömu slóðum og í gærkvöldi, munaði bara einhverjum þremur
borðum og svo var sama starfsfólk að vinna og í gærkvöld
En allavega - í forrétt í þetta skiptið fékk ég sjávarrétta
súpu. Hef aldrei áður smakkað svoleiðis. Bara nafnið leggst
rosalega illa í mig en þetta var bara mjög gott fyrir
utan gumsið sem var í henni. Skildi þá bara eftir. Síðan var
dúnamjúkt lambakjöt í aðalrétt ásamt meðlæti. Það var allt
saman líka mjög gott. Í eftirrétt var ís og eitthvað mjög
listrænt, röndótt súkkulaðimousse eitthvað. Það var líka rosa
gott.
Skemmtiatriðin
voru alveg frábær þar sem hópurinn Le sing
(syngjandi þjónarnir) sá algjörlega um þau. Algjör snilld og
mæli mikið með þeim. Sérstaklega vegna þess að Sjonni Brink, a.k.a
Herra Fallegur var þar í broddi fylkingar. Jesús minn góður hvað
hann er viðbjóðslega sætur og heillandi. Og ekki nóg með að hann
skuli vera slefandi sætur, þá þurfti hann endilega að syngja Robbie
Williams lagið FEEL og þá hrundi ég endanlega í gólfið. Og bara
svona til að bæta gráu oná svart, þá kom hann í einni pásunni þarna
að borðinu þar sem ég og ein önnur sátum og opnaði hurð þar sem kom
strekkings vindur inn um, og brosti sínu fagra brosi og
sagði við okkur að hann hefði verið að vona að pilsin mundu
flettast upp við hviðuna
Við nottla sögðum að hann væri alltaf
velkomin til að fletta þeim upp... Njeiiii ekki alveg. Meira
bara stömuðum eitthvað og brostum eins og fífl.
Þegar Le Sing
hafði lokið sínu, tók við smá diskó og svo stigu á stokk félagarnir
í BUFF og eru væntanlega enn að spila í þessum
töluðu. Þeir voru mjög góðir allavega þar til við létum okkur
hverfa. Ég skutlaði þá Helgu og Svandísi niðrí bæ en fór sjálf heim
og here i am.
Það var eitt
mjög fyndið... hef kannski ekki efni á að hlæja að þessu miðað við
fyrri reynslur- en samt.. Þá sat kona fyrir aftan mig í
skærgrænum bol með svartan risa Vero Moda verðmiðann
hangandi niður á mitt bak. Ég tók ekki eftir þessu fyrr en eftir
skemmtiatriðin og pikkaði þá í hana og benti henni á óskundann. Hún
greyið búin að vera spígsporandi með miðann á allt heila kvöldið

Arnar var svo
yndislegur að lána mér myndavélina sína svo ég tók nokkrar myndir
bæði í gærkvöld og í kvöld. Er búin að setja inn myndir
gærkvöldsins og hinar eru líka á leiðinni 